Færsluflokkur: Bloggar
Já það er soldið síðan að ég bloggaði síðast..,
En núna er ég komin í páskafrí, og skellti ég mér til Reykjavíkur um helgina til að hitta mínar yndislegu frænkur og að versla smá... Þetta byrjaði allt saman á föstudeginum þegar það var lagt af stað um 18 leytið og fékk hún Svala far með okkur, það var bara brunað beint suður, þegar suður var komið ætlaði ég að fara og hitta hana Birnu sem var í einhverju afmæli en hún bara svaraði ekki í símann svo ég fór bara í einhverja heimsókn sem var nú ekkert spes...
Svo var bara vaknað á laugardeginum, og farið í bakarí að borða og svo var bara eitthvað verið að versla fyrst með ma og pa og svo með Birnu, síðan um kvöldið skeltum við frænkurnar okkur í bíó á Juno og er það bara mjög fín mynd, svo fórum við laugarveginn og svo að ná í foreldra mína og svo var farið heim að horfa á Stardust en nenntum við ekki að horfa á hana alla þannig að við fórum bara að sofa...
Á sunnudeginum var farið að versla matvörur og eitthvað þannig leiðindi og svo var bara lagt í hann heim um 17, og þegar við vorum komin í staðarskála þá bað Ástvaldur okkur um að keyra hægt því ég þurfti að fara með honum í Borgarnes og taka bílinn svo heim, og þurfti ég að keyra beinskiptan bíl svona langt í fyrsta skipti eftir að ég fékk bílpróf og ég er búin að vera með prófið í 7 mánuði, þannig að ég var ekki komin heim fyrr en hálf 2 og búin að sitja í bíl síðan um 17...
En svo þessa viku eru,,æfingabúðir" í fótboltanum, 2 æfingar á dag, og vorum við í sundi áðan að synda og svo er æfing á eftir kl 19 og þá er tækni og hlaup og svo á morgun er ratleikur A LA stuðjón og svo bodypump og svo um kveldið partý og Páll Óskar reyndar er hann 18+, en ég nenni ekki að hafa þetta lengra ætla að fara að gera eitthvað...
P.S. Fyrir 4 árum var ég ökklabrotinn og svona var ég að skera fermingarkökuna
Bloggar | 18.3.2008 | 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
My heart's full of sorrow, I wont let it show,
I'll see you again when it's my time to go.
When I think of angels I think of you <3
Bloggar | 2.3.2008 | 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jæja ég ákvað nú að prófa þetta blog kerfi því ég er komin með leið á bloggar.is það er ekki alveg að gera sig En ég ætla nú að vona að þetta haldist út hjá mér
En núna var ég klára prófin og veit ég að ég er búin að ná íþróttasálfræði fékk 9, en annars er bara að bíða og sjá hvernig þetta fer hjá manni vona það besta...
Á morgun og á föstudaginn eru opnir dagar í skólanum og ætli að maður verði ekki að fara í eitthvað á fimmtudeginum en ég nenni ekki að fara í neitt á föstudeginum því við stelpurnar í mfl.kvenna erum að fara suður að keppa og vona ég nú bara að okkur eigi eftir að ganga vel, það þýðir ekkert annað... Svo helgna þar á eftir er maður að fara í sextugs afmæli hjá Steina frænda og vona ég svo innilega að Birna og Sandra komi til að veita mér félagsskap innan um þetta allt gamla fólk
En ég nenni ekki að hafa þetta lengar, ætla að fara að gera eitthvað gang, vekja lilju eða eitthvað og svo er maður að fara í bodypump kl 6 ...
Bloggar | 27.2.2008 | 16:07 (breytt kl. 16:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tenglar
Mínir tenglar
- Meistaraflokkur kvenna Tindastóls:]
- Birna og co
- Sandra Rós
- Sunna Björk
- Drottningarnar
- Þorgrímur og litli kútur frændur mínir
- Trausti frændi
- Haukur Ingi frændi
aðrir tenglar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar